Meðhöndlun ákveðinna punkta eða svæða líkamans er aðferðafræði byggð á aldagömlum hefðum frá Egyptalandi og Kína. Þrýstipunktameðferð og svæðanudd eru meðal vinsælustu meðhöndlunaraðferðanna. Svæðameðferð gengur út frá þeirri grunnforsendu að tengsl séu milli svæða á fótum og mismunandi líkamshluta. Því hefur örvun þeirra svæða áhrif á viðeigandi líffæri. Með örvun viðbragðssvæða í fótum myndast jafnvægi milli áreynslu og afslöppunar sem að lokum eykur heildræna vellíðan. Innleggið er hannað til að gefa eftir þar sem við á, veita örvun við hæfi á virk viðbragðssvæði og líkja eftir því að ganga berfættur. Hannað af lækni og þróað af ýmsum sérfræðingum, eykur innleggið vellíðan með því að örva þessi viðbragðssvæði iljanna. Þekking sem myndast hefur á þúsundum ára er nú loksins notuð í skó – fyrir þína vellíðan. Innleggið hefur áhrif á mænuna og önnur líffæri, í gegnum bæði þver- og langboga iljar. Með örvun viðbragðspunkta í fæti eykst blóðflæði til þeirra líffæra, kirtla, vöðva og liðbanda sem tengdar eru þeim og stuðlar að því að slaka á vöðvum í fætinum og jafnvel aftur í bak, frá grindarbotni til hnakka. Í hnotskurn þýðir það: ● Að fótum sé stýrt til réttrar stöðu ● Að líkamsburður verði betri ● Að þú finnir minni óþægindi og verki í hálsi, baki, mjöðm og grindarholi Fætur og mæna eru í raun fjaðrandi stoðkerfi sem haldið er saman og stjórnað af liðböndum og flóknu kerfi vöðvahópa sem verða fyrir áhrifum af hringrás blóðs og eitlavökva í viðbragðssvæðum fóta. Með því að örva eða nudda eitlasvæði og með því að breyta viðbragðshreyfingum, ásamt því að virkja viðbragðssvæði fóta má hafa jákvæð áhrif á blóðrás og samspil liðbanda og vöðva í fótum, sem tengjast mænunni, í gegnum háls og upp í höfuð. Með þessu flókna samspili var manninum fyrst gert kleift að ganga uppréttur. Innleggið örvar ekki einstök líffæri, heldur viðbragðssvæðin heildstætt og í gegnum mænuna sem er meginstöð orku og stýrir öllum líffærum. Innleggið er gert úr náttúrulegum efnum og hannað til að hindra oförvun þótt þú njótir þess að nota það allan daginn. UNDRI HEILSUINNISKÓR
Download PDF file