Ending og umhverfis- vernd haldast í hendur Við hjá Flügger viljum auðvelda þér að taka umhverfisvænar ákvarðanir. Markmið okkar er að þú getir tryggt viðskiptavinum að vörurnar sem þeir vinna með spilli umhverfinu sem allra minnst. Við útboð í opinberar byggingar er gjarnan gerð krafa um notkun á umhverfisvænum vörum – og sífellt fleiri almennir viðskiptavinir kjósa einnig að nota sem allra vistvænust efni. Svansmerkið er líka gæðastimpill Það ætti enginn að sætta sig við annað en bestu útkomuna. Með Flügger Wood Tex þarft hvorki þú né viðskiptavinir þínir að gera neinar málamiðlanir. Allar vörurnar, nema Flügger 01 Wood Tex- grunnolían, eru Svansmerktar. Fyrir þig og starfsmenn þína þýðir þetta að þið verðið ekki fyrir útsetningu skaðlegra efna og eitraðrar gufu í starfi ykkar. Kannski vita þó færri að Svansmerkið er ekki bara enn eitt umhverfisvottunarmerkið, heldur gerir einnig strangar gæðakröfur um varnarstig og endingu viðarvarnarinnar. Þess vegna er Svansmerkið gæðastimpill sem þú ættir að kynna á virkan hátt í samtölum við viðskiptavini. Þetta þýðir nefnilega að Svansmerkt Wood Tex-viðarvörn hefur gengist undir ítarlegar prófanir og að viðnám hennar gegn sól, regni og raka yfir langt tímabil er vottuð með gögnum. Vissir þú að … • Wood Tex-vörur frá Flügger eru EPD-skjalvottaðar? • Flügger er með vottun sam- kvæmt ISO 9001 og 14001?
Download PDF file