Látum hrífast af heimilinu okkar upp á nýtt. Nýtt ár, nýir möguleikar! Fyrir marga er janúar tíminn sem hefst með óskrifuðu blaði. Hjá Flügger tökum við á móti árinu 2022 með ótal nýjum hugmyndum og litum, þjónustu og spennandi stílbrigðum. Ef þig langar í skapandi en ekki of viðamikið verkefni mælum við með því að nota KABRIC á húsgögn sem væri gaman að hressa aðeins upp á. Ítarlegri leiðbeiningar og hugmyndir eru á bls. 3. Árið hjá okkur byrjar á risastórri kynningu á nýja litakortinu okkar: Heima með Flügger litum. Litakortið er safn af 30 litatónum með norrænni, látlausri fágun. Sjá nánar á bls. 4–5 og á www.flugger.is. Í augum margra er stofan hjarta heimilisins og á bls. 6–9 útskýrir norskur litaráðgjafi okkar hvað er nauðsynlegt að hafa í huga við val á litum í stofuna. Sæktu þér innblástur í nýju litina okkar og endurhannaðu stofuna. Á bls. 10–11 getur þú fræðst um styrktarfyrirkomulagið okkar, Flügger Andelen, þar sem þú styrkir það félag sem stendur þér næst með því að versla hjá Flügger. Ertu með spurningar eða þarftu leiðbeiningar fyrir næsta verkefni? Hafðu þá endilega samband við okkur á flugger.is eða líttu við í einni af verslunum okkar. Samskiptaupplýsingarnar okkar eru á baksíðu blaðsins. Mynd: @nannafoynberg Litur: KABRIC i fargen Linen
Download PDF file