Mynd til vinstri.: Noel and Marquet/Deco Systems Mynd til hægri.: Veggfóður Heritage 600827, Litur 5315 Skapaðu þennan vinsæla stíl á þínu heimili Vinsældir stucco-stílsins hafa aukist á ný undanfarið. Þetta er stíll sem margir tengja við lúxushótel og glæsihallir, en væri ekki gaman að nota hann á heimilinu? Flügger er með allar nauðsynlegar vörur fyrir yfirborðsmeðferðir og við erum ævinlega tilbúin að aðstoða við vöru- og litaval. Sérlega vönduð málning Þegar þú hefur valið skrautlistana sem þú vilt nota er mikilvægt að velja málningu sem tryggir fallega lokaútkomu. Flügger High Finish Interior er vörulína sem skilar þér endingargóðri og fallegri lokaútkomu. Varan fæst í gljástigunum 5, 20, 50 og 90 og hægt er að blanda hana í öllum litum. Til að tryggja gott undirlag áður en þú málar skaltu nota Interior Stop Primer grunn. Fallegur heildarsvipur Veggfóður fer sérlega vel við stucco-útlit og skrautlista. Veggfóðursgerðirnar í EDGE-línunni frá Detale CPH eru dæmi um smekklega hönnun með nútímalegu ívafi. Hér er það aðeins þitt ímyndunarafl sem dregur mörkin og mikilvægast er að taka mið af eigin smekk og stíl. Góð ráð við litaval Það er gott að taka fyrst mið af litatónunum í veggfóðrinu. Notaðu grunnlitinn í veggfóðrinu, eða annan áþekkan lit, til að ná fram lágstemmdu, heildstæðu yfirbragði. Ef þú vilt aðeins meiri tilþrif getur þú valið svolítið sterkari andstæðulit. Flügger býður mikið úrval af hágæða vörum sem auðvelda þér að ná fullkomnum árangri á heimilinu. Í næstu Flügger verslun færðu allt sem þarf, frá fallegu veggfóðri yfir í fullkomna málningu fyrir skrautlista.
Download PDF file