María valdi litina fyrir hin ýmsu herbergi heimilisins af mikilli kostgæfni og leitaðist við að skapa heildstætt yfirbragð, en gefa um leið hverju herbergi sín sérkenni. Fyrir svefnherbergið valdi hún litinn 4483. Þetta er fallegur, sefandi litur með tímalaust og látlaust yfirbragð. Undirtónarnir eru svalir og það sést greinilega hvernig litbrigðin breytast á veggnum eftir tíma dags hverju sinni. Innréttingar í hlýlegum jarðlitum og gráum tónum með örlitlum túrkís í bland gefa fallegan og persónulegan svip. Herbergið er virkilega notalegur griðastaður þar sem gott er að slaka á. Mynd: @paz.is Litir: 4483 Mynd: @paz.is Litur: 4483
Download PDF file